sumar itr Norðlingaskóli Rafræn Holtið
 
 

Góðir hlutir gerast hægt ;)

Kæru foreldrar og börn.
Þá er sjötta vikan að klárast hjá okkur í Klapparholti og allt gengur rosalega vel. Við höfum haft undanfarnar vikur á léttu nótunum og verið bara í skipulögðu vali mest allan tíman. Fullt af nýjum börnum hafa byrjað og einnig mikið af nýju starfsfólki og öll höfum við þurft að venjast hvort öðru og betra að gera það þá á rólega mátann. En þetta mun nú breytast í næstu viku þar sem dagskráinn verður auglýst þá. Við ætlum að vera með klúbbastarf og þriðju bekkjar "klíku" svo eitthvað sé nefnt. Við erum þó ekki alltaf í endalausu vali því íþróttaskólinn fyrir 1. bekk er byrjaður sem krökkunum finnst voðalega gaman og er hann á þriðjudögum. Árbæjarkirkja kemur einnig einu sinni í viku, á fimmtudögum með kirkjustarfið fyrir 1-4 bekk og þeim er frjálst að fara þangað.
Verið er að uppfæra síðuna þannig að þær upplýsingar sem eru nú á síðunni eru marktækar :)
 
Í Klapparholti eru skráð 79 börn og enþá nokkur á biðlista, því miður. En verið er að reyna að leysa þau mál eins fljótt og auðið er. Þannig að það verður fjör á hóli :D
Starfsólkið sem verður í Klapparholti í vetur er flest nýtt en ekki allir. Katrín og Ragga voru í fyrra og því ættu margir að kannast við þær ;) Þær eru líka með okkur í vetur, Nýju andlitin sem verða í vetur eru Ása (verkefnastjóri, verður samt bara fram að áramótum), Tóta, Laufey, Björk, Unnur, Margrét, Viri og Andrés. Svo má búast við fleirum nýjum með tímanum ;) En við erum ótrúlega spennt og jákvæð fyrir komandi vetri og hlökkum til að eyða honum í Klapparholti.
 
Með vinsemd og von um gott samstarf,
 
Starfsfólk Klapparholts :)