Um Klapparholt
Frístundarheimilið Klapparholt er staðsett í Norðlingaholti í Norðlingaskóla. Skólinn stendur á milli Rauðavatns og Elliðarvatns
Klapparholt hefst um leið og skólinn klárast kl. 14 og þá koma krakkarnir í 1. - 4. bekk til okkar.
Í Klapparholti er lagt upp með að allir njóti sín á sinn hátt. Við reynum einnig af bestu getu að hafa sem mest í boði fyrir krakkana.
Auk þess leggjum við áherslu á:
-
Að vera vinir krakkana
-
Að vera með þeim í leik og starfi
-
Að hlusta á krakkana
-
Að þau geti treyst okkur
-
Að þau geti leitað til okkar, sama hvað bjátar á
-
Að þeim líði vel í Klapparholti! :)
Umsjónarmaður Klapparholts er Sebastian Geyer
Best er að hafa samband fyrir klukkan 13:00 á daginn.