Starfsemin í Klapparholti
Frístundarheimilið Klapparholt leggur fyrst og fremst upp með að hver og einn einstaklingur njóti sín á sinn eigin hátt. Aðalmarkmiðið í Klapparholti er að allir finni til öryggis og geti skemmt sér vel.
Þar sem við byggjum frístundarheimilið upp á því að þetta sé frítími barnanna leyfum við þeim svolítið að stjórna því sem gert er með aðstoð starfsfólks.
Starfsfólk Klapparholts sér um að útbúa skemmtilega og fjölbreytta dagskrá í hverri viku fyrir börnin og geta þau þá valið úr ýmsum verkefnum eftir því hvar áhugasvið þeirra liggur. Einnig höfum við ofarlega í huga að börnin koma til okkar úr skólanum þar sem þau eru meira í skipulögðu starfi svo við gefum þeim alltaf tíma í að leika sér frjálst.
Við í Klapparholti lítum á LEIKINN sem þungamiðju starfsins, þar sem frjáls- og sjálfsprottinn leikur er hið eðlilega tjáningarform sem börn tileinka sér. Reynslan hefur sagt okkur að börn læra oft best í gegnum leik.
Leikurinn er sjálfstjáning barnsins og af honum sprettur ný þekking, nýjar tilfinningar, nýjar athafnir og færni. Í leiknum reynir á frumkvæði, sjálfstæði, samvinnu, félagsþroska og úthald. Með fjölbreyttri og krefjandi dagskrá er leitast við að börnin læri í gegnum leik, þar sem sterku hliðar hvers og eins fái að njóta sín.