Heilir dagar í Fjósinu
Heilir dagar í Fjósinu eru á þeim dögum sem hefðbundin kennsla fellur niður, það er á starfsdögum kennara, foreldraviðtalsdögum, í jólafríum og páskafríum þar sem því verður við komið.
Frá og með áramótum 2007-2008 borga foreldrar 890 kr. fyrir hvern heilan dag. Skrá þarf börnin sérstaklega á þá fyrir áður auglýstan fyrirvara og er skráningin bindandi því foreldrar verða rukkaðir fyrir hvern dag sem barnið er skráð hvort sem barnið nýtur þjónustunnar eða ekki. Gjaldið fellur niður ef upp koma veikindi hjá barninu séu veikindin tilkynnt samdægurs.
Á heilum dögum er reynt að bjóða upp á spennandi dagskrá, oft eitthvað óhefðbundið eins og vettvangsferðir. Á heilu dögunum koma börnin með nesti með sér til að borða í 09:30 hressingu og í hádeginu en síðdegishressingin er á sínum stað.