Samfés 2010
Upplýsingar varðandi Samfés
Föstudagurinn.
Mæting í Fókus er kl. 17.20 föstudaginn 5. mars. Mjög mikilvægt að mæta á réttum tíma því rútan bíður ekki eftir neinum.
Þegar við förum í rútuna er best að allir skilji yfirhafnirnar sínar eftir í Fókus, því það er EKKI fatahengi í höllinni og EKKI hægt að skilja neitt eftir í rútunni.
Allir skulu vera búnir að borða vel áður en við leggjum af staðJ
Ballið er búið kl. 23.00 og þá fara allir beint út í rútu. Rútan leggur svo af stað um leið og allir eru komnir.
Laugardagurinn.
Mæting í Fókus er kl. 12.00 laugardaginn 6. Mars. mjög mikilvægt að mæta á réttum tíma því rútan bíður heldur ekki á laugardaginnJ
Skjár einn verður á staðnum til að taka upp keppnina svo áhorfendur verða að passa sig að rápa ekki mikið á meðan keppnin er í gangi.
Rútan leggur af stað frá höllinni strax að lokinni keppni kl. 16.00.
Mjög mikilvægt er að allir viti að það verða allir að fara með rútunni fram og tilbaka á báða viðburðina.