Íþróttaskóli
Íþróttaskólinn er á mánudögum og föstudögum.
Fyrri hópur er kl: 14.45 - 15.25
og seinni hópur frá kl: 15.25 - 16.05.
Umsjón hefur Arnar Eyjólfsson.
Íþróttaskóli fyrir 6 ára börn í Reykjavík er samstarfsverkefni
- Íþróttafélaga,
- Íþróttabandalags Reykjavíkur,
- Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur,
- Grunnskóla Reykjavíkur og
- Reykjavíkurborgar
Hvað er íþróttaskóli?
Íþróttaskólarnir eru reknir af íþróttafélögum í skólahverfinu. Íþróttatímarnir eru í flestum tilfellum í íþróttasölum grunnskólanna og sum staðar í beinu framhaldi af skólastundaskrá. Reykjavíkurborg býður öllum 6 ára börnum í grunnskólum Reykjavíkur frían aðgang að íþróttaskóla tvisvar sinnum í viku.
Hvað er íþróttaskóli?
Börnum er eðlislægt að leika sér og mikilvægt er að þau fái tækifæri og aðtöðu til þess. Íþróttaskóli er byggður á þeirri hugmynd að útfæra íþróttir í leikrænu formi og gera alla að þátttakendum á eigin forsendum. Í íþróttaskólanum eru margar íþróttir kynntar og prófaðar í einföldu formi sem höfða til barna. Áhersla er lögð á grunnþjálfum og leiki en ekki á frammistöðu, árangur eða keppni.
Markmið íþróttaskóla er:
- að stuðla að því að fyrstu kynnni barna af íþróttum verði jákvæð
- að efla líkamlega og félagslega færni barna
- að gera íþróttaiðkun aðgengilega
- að bjóða öllum að vera þátttakendur
- að gera íþróttir skemmtilegar
- að gefa börnum tækifæri til að leika sér með félögum sínum
- að sjá til þess aðbörn upplifi sig á jákvðan hátt og fái aukið sjálfstraust
Það er hægt að læra ýmislegt í íþróttaskóla
Ekki þarf að útskýra í mörgum orðum hve mikilvægt það er fyrir börn að fá fjörlbreytta hreyfiþjálfun. Börn með slakan hreyfiþroska eru síður tilbúin í ýmsa námsþætti í skólanum sem krefjast einbeitingar og fínhreyfinga. Í íþróttaskóla og leikjum læra börn að fara eftir settum reglum. Þar er einnig vettvangur til að þjálfa m.a. raddbeitingu, umburðarlyndi og tillitssemi. Það er mikilvægt fyrir börn að læra að vera í hópi og "takast á" með jákvæðum formerkjum. Það skiptir t.d. máli að börn þori að vera þátttakendur með öðrum börnum í hópleikjum í frímínnútum í grunnskólanum.
Íþróttta- og ólympíusamband Íslands
Í stefnulýsingu ÍSÍ segir að íþróttir fyrir börn og unglinga eigi að vera fjölþættar, örva alhiða hreyfiþroska og vera skemmtilgear. Mikilvægt er að hvetja börn til að stunda fkeiri en eina íþróttagrein og er íþróttaskólinn kjörinn vettvangur til þess.
Stundaskrá íþróttaskólans
Í boði er fjölbreytt og skemmtileg vetrardagskrá þ.s. leikir og grunnþjálfun eru í fyrirrúmi og ýmsar íþróttagreinar útfærðar fyrir börn, eins og knattspyrna, handknattleikur, frjálsar íþróttir, fimleikar, borðtennis, badminton, blak, tennis, körfubolti, karate og glíma. Auk þess er t.d. boðið upp á útileik og skautaferð.
Efni: Íþróttabandalag Reykjavíkur, 2004