Leikjabanki

Leikir

"Gettu hvað-látbragðsleikur"

Valin eru tvö eða fleiri lið og einn úr hverju liði dregur miða úr skál. Og á sá að leika það sem stendur á miðanum og hinir eiga að geta hvað það er. Hægt er að velja sér föt til að gera leikinn meira lifandi ef maður vill. Skemmtilegur leikur sem reynir á hugmydnaflugið.

Skeiðaleikurinn

Krakkarnir setjast í hring og skeiðum er raðað í miðjuna. Skeiðarnar eru einum færri en krakkarnir í hringum. Síðan er spiluð tónlist og þegar hún stoppar eiga þau að reyna að ná í eina skeið. Hann sem ekki nær er úr. Skeiðunum fækkar jafnt og krökkunum. Önnur útgáfa af stólaleiknum.

Limbó

Tveir halda á kústskafti á milli sín og krakkarnir eiga að reyna að fara undir án þess að snerta skaftið eða detta. Spiluð er fjörug tónlist með. Skaftið lækkar og lækkar og verður þá erfiðara að fara undir án þess að detta eða snerta kústskaftið.

Blöðruleikur

Uppblást blaðra er bundinn við annan fótinn á krökkunum og svo eiga þau að reyna að sprengja blöðruna hjá hvort öðru. Sá vinnur sem er með sína blöðru ósprengda. Mikill hávaði í þessum leik og tekur mikið pláss. Fínt að nota íþróttasalinn fyrir þennan leik.

Dagblaðaleikur

Tveir og tveir krakkar eru saman og fá eitt dagblað. Dagblaðið liggur á gólfinu og eiga krakkarnir að dansa í kringum það. Þegar tónslistinn stoppar eiga krakkarnir að standa á dagblaðinu. Eftir hvert stopp er dagblaðið brotið saman þannig að það minnkar smá saman. Krakkarnir verða þá að finna út hvernig þau geta bæði staðið á blaðinu. Hægt er að leysa það með því að halda á félaganum eða taka hann á hestbak svo e-h sé nefnt. Skemmtilegur leikur sem krefst hugmyndaflugs og samvinnu.

Hengimann

Krakkarnir skipast á að búa til orð sem hinir eiga að geta hvað er. Þeir segja bókstafi og ef þeir segja vitlausan staf er smá saman teiknaður hengimann. Góð æfing í læra stafina og að skrifa orð.

Fela hlut

Krakkarnir skiptast á að fela hlut meðan einn af þeim fer út úr herberginu á meðan. Síðan kemur sá inn og hann fær vísbendingar með því að segja heitt eða kalt. Kalt ef hann er langt frá hlutnum og heitt ef hann er nálægt.

Pakkaleikurinn

Krakkarnir sitja í hring og risa stór pakki með mörgum lögum af pappir er látin ganga í takt við tónlistina. Þegar tónlisitn stoppar má sá sem er með pakkann taka utan af pakkanum eitt lag af papír. Svo er tónlistin sett afur í gang og pakkinn látin ganga. Svona gegnur þetta þanngað til einn situr eftir með það sem er inni í pakkanum.

Hver er undir teppinu

Krakkarnir sitja í hring. Einn er valin til að fara út úr herberginu og á meðan fer einn undir teppi í miðjum hringnum. Hinir skipta gjarnan um sæti til að rugla þann sem er frammi.Sá sem er frammi kemur svo inn í herbergið og á hann þá að reyna að geta hver er undir teppinu.

"Gettu hvað-teikning"

Í gettu-hvað skiptum við í tvö lið. Hvert lið velur einn til að teikna (skipst á hver það er). Teiknararnir draga miða úr skál og eiga svo að teikna það sem stendur á miðanum. Liðin eiga svo að geta hvað er verið að teikna. Liðið fær tvö stig ef það getur það strax, annnars bara eitt stig. Þetta er skemmtilegur leikur sem reynir á samvinnu og þolinmæði liðsmanna.

Dansandi kústskaft

Krakkarnir eiga að dansa með kústskaft og láta það síðan ganga til næsta manns. Þegar tónlistinn stoppar er hann úr sem heldur á skaftinu. Ekki má láta það ganga um leið og maður fær það án þess að hafa dansað með það. Mikið fjör í þessum leik.