Fjölskylduoghúsdýragarðurinn Rafræn Ársel ÍTR
 
 

Sumarstarf ÍTR 2010

Eins og undanfarin ár verður nóg framboð af spennandi afþreyingu í sumar fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Sumarvefur ÍTR www.itr.is/sumar, opnar 1. apríl n.k. en þar verður að finna upplýsingar um sumarstarf í Reykjavík fyrir börn á aldrinum 5-18 ára. Í boði verða siglingar, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið, leikjanámskeið, sumarfrístund og margt fleira.

Þann 12. apríl verður opnað fyrir skráningu í sumarstarf á vegum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar (ÍTR) á Rafrænni Reykjavík http://rafraen.reykjavik.is. Sumarstarf ÍTR fyrir 6-9 ára fer að mestu leyti fram á frístundaheimilunum þar sem áherslan verður á sumarið, hreyfingu, útiveru og leiki (sumarfrístund). Boðið verður upp á ýmis námskeið og klúbbastarf fyrir 10–12 ára börn, smíðavellirnir verða í boði fyrir 8-12 ára og félagsmiðstöðvarnar verða með aukinn opnunartíma fyrir 13-16 ára unglinga. Í Siglunesi í Nauthólsvík verður boðið upp á siglinganámskeið og klúbba fyrir 9-15 ára.

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið í frístundamiðstöðvar ÍTR (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð við skráningu. Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf í gegnum síma. Starfsfólk þjónustumiðstöðva, frístundamiðstöðva og Símavers Reykjavíkurborgar (s. 411 1111) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu. Skráning þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á föstudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir.

SKRÁNING Í ANNAÐ SUMARSTARF Upplýsingar um skráningu í annað sumarstarf en hjá ÍTR er að finna á www.itr.is/sumar á upplýsingasíðum hvers sumarstarfstilboðs fyrir sig.

Með von um ánægjulegt samstarf.

Bestu kveðjur,

Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri tómstundamála ÍT