Útbúnaður í Sumarfrístund 2010

Mikilvægar upplýsingar fyrir foreldra
Foreldrar verða að kynna sér dagskrána fyrir hvern dag og útbúa börnin eftir því.  Til dæmis að senda þau með sundföt og handklæði þann dag sem farið er í sund, í stígvélum þegar farið er í fjöruferð o.s.frv.
Mikilvægt er að börnin séu klædd til útiveru, eftir veðri og vindum, hafi hollt og gott nesti og síðast en ekki síst að þau séu með góða bakpoka með þægilegum böndum sem skerast ekki inn í axlirnar á þeim. 
Foreldra eru hvatir til að bera á börnin háá sólarvörn þeim til varnar því sólin er miskunarlaus þegar hún skín og börnin eru úti allan daginn, léttklædd.  Þá er helst að huga að nefi, kinnum, enni, eyrum og hnökkum á strákum, framhandleggjum og öxlum  Eining að þau séu með derhúfur eða buff til varnar skallanum.  Við gerum okkur ekki grein fyrir því að við brennum auðveldlega í sólinni á Íslandi alveg eins og á Spáni!
Mikilvægt er að foreldra láti vita fyrir kl: 9.00 ef börnin forfallast.  Einnig eru allar upplýsingar um heilsufar barnanna nauðsynlegar svo starfsmenn geti brugðist rétt við ef eitthvað kemur upp t.d. ofnæmi.
Ekki er leyfilegt að koma með sætindi, gos, peninga, gsm síma, i-pod og leikföng. 
Útbúnaður í Sumarfrístund
Allir sem taka þátt í Sumarfrístund í frístundaheimilinu Stjörnulandi verða að hafa eftirfarandi útbúnað hverja viku;
-Þægilegan bakpoka
-Þrjú holl og góða nesti.  Gott er að merkja boxin 1, 2 og 3 til að auðvelda börnunum að skipuleggja sig.                                                                    
-Vatnsbrúsa
-Regnfatnað/skjólfatnað.  Ekki gleyma stígvélunum.
-Góða skó til göngu og útiveru