Frístundakort
Efni: Notkun Frístundakorts vegna niðurgreiðslu dvalargjalda
Frístundakort ÍTR er styrkjakerfi vegna íþrótta
‐ og tómstundastarfs barna og unglinga 6‐18 ára í
Reykjavík. Styrkurinn nemur kr. 25.000 á hvert barn á ári og með honum er hægt að greiða niður
æfingagjöld barnanna. Ekki er um beingreiðslur að ræða en hægt er að ráðstafa styrknum til viðkomandi
félags á Rafrænni Reykjavík
http://rafraen.reykjavik.is/pages/. Nánari upplýsingar um það hvernig
ráðstöfun fer fram er að finna á þessari síðu http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid
‐
3697/6079_view
‐1524/.
Foreldrar barna á frístundaheimilum ÍTR geta nýtt Frístundakortið til niðurgreiðslu dvalargjalda. Ekki er
hægt að ráðstafa allri upphæðinni í einu heldur þarf að ráðstafa styrknum mánaðarlega eða þar til öll
upphæðin hefur verið notuð.
Sé barnið á frístundaheimili í september berst greiðsluseðill vegna dvalargjalda þann mánuð á bilinu 20.
‐
24. september. Sama dag er barnið lesið inn í Rafræna Reykjavík og hægt er að ráðstafa Frístundakortinu
til 13. næsta mánaðar (október í þessu tilfelli) en þá er lokað fyrir ráðstöfun þann mánuð. Þegar búið er
að ráðstafa Frístundakortinu er reikningur lækkaður í heimabanka en það getur tekið 1
‐2 virka daga. Ekki
verður sendur út nýr greiðsluseðill með lægri upphæð. Eingöngu er hægt að niðurgreiða dvalargjöld en
sé barnið í síðdegishressingu þarf að greiða fyrir hana sérstaklega.
Mikilvægt er að þeir sem ráðstafa Frístundakortinu greiði ekki greiðsluseðilinn fyrr en búið er að lækka
hann í heimabanka. Sé greitt með greiðslukorti verður sú upphæð lækkuð á kortareikningi.
Ef þið eigið í erfiðleikum með að fá lykilorð til að skrá ykkur í Rafræna Reykjavík eða að ráðstafa
Frístundakortinu þá vinsamlegast snúið ykkur til Símavers Reykjavíkurborgar í síma 411
‐1111 eða til
þjónustumiðstöðvar í ykkar hverfi en þær eru:
-
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39
-
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45‐47
-
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21
-
Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12
-
Þjónustumiðstöð Grafarvogs, Langarima 21
-
Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Hraunbæ 115
-
Þjónustuver Reykjavíkurborgar ‐ Höfðatorg ‐ Borgartúni 12‐14