Um Töfrasel
Frístundaheimilið Töfrasel er starfrækt fyrir börn í 1. - 4. bekk. Það opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og er opið til kl. 17:15. Töfrasel er staðsett í "kjallara" félagsmiðstöðvarinnar Ársels við Rofabæ 30. Töfrasel er á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og er að hefja sitt fjórða starfsár hér í Árseli. Töfrasel er eitt af sex frístundaheimilum sem ÍTR rekur í Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti og tilheyra þau öll Árseli. Við hér í Töfraseli leitumst eftir að hafa starfið sem fjölbreyttast og skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi.
Mánaðargjald frístundaheimillanna eru 8.365 krónur. Einnig hefur fólk kost á því að nýta sér sveigjanlega þjónustu. Sveigjanleg þjónusta felur í sér að foreldrar geta valið eins til fimm daga dvöl fyrir börnin sín og greitt samkvæmt því.
Boðið er upp á síðdegishressingu fyrir þá sem vilja gegn gjaldi.
Vistunargjald:
5 dagar í viku kr. 8.365/mánuð
4 dagar í viku kr. 6.820/mánuð
3 dagar í viku kr. 5.270/mánuð
2 dagar í viku kr. 3.710/mánuð
1 dagar í viku kr. 2.160/mánuð
Síðdegishressing:
5 dagar í viku kr. 2.150/mánuði
4 dagar í viku kr. 1.720/mánuði
3 dagar í viku kr. 1.290/mánuði
2 dagar í viku kr. 860/mánuði
1 dagar í viku kr. 430/mánuði
Umsjónarmaður Töfrasels er
Erna Bryndís Einarsdóttir og er hún til viðtals í síma
695 5092 á milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. Best er að hringja fyrir hádegi því það er ekki mikill tími í símaspjall á meðan börnin eru hjá okkur. Einnig er hægt að hringja í 567 1320 og senda tölvupóst á
tofrasel@itr.is.