Algengar spurningar
Hversu mikið nesti þurfa börnin að hafa með sér á löngum dögum?
Þau þurfa að hafa með sér morgunmat (nema þau borði áður en þau koma) og hádegismat.
En ef þau eru ekki skráð í síðdegishressingu þá þurfa þau einnig að koma með síðdegisnesti.
Lánar frístundaheimilið barninu föt ef það blotnar?
Við eigum því miður ekki til föt til að lána. Sniðugt er að geyma t.d. auka sokka og stuttbuxur í skólatöskunni og þá getur barnið verið í þeim á meðan buxurnar eru settar á ofn.
Má geyma útiföt á snögunum í Töfraseli yfir nótt eða helgi?
Við getum ekki tekið ábyrgð á fatnaði sé hann geymdur hér, þar sem ýmis önnur starfssemi er í húsinu þegar við erum ekki þar t.a.m. er það oft lánað út sem gistipláss.