Fréttir

Ráðstöfun frístundakorts

Minnum á að síðasti dagur til að ráðstafa Frístundakorti vegna dvalargjalda í mars er 13. apríl. Vinsamlegast greiðið greiðsluseðil eftir að hann hefur verið lækkaður í heimabanka en það getur tekið 1-2 virka daga eftir að ráðstöfun er framkvæmd.
Kveðja
Sólveig Valgeirsdóttir
Verkefnastjóri frístundakorta
Íþrótta- og tómstundasvið
Bæjarhálsi 1
S. 4115080
www.itr.is

Skráning hefst mánudaginn 12. apríl

í Sumarfrístund 2010 á vefslóðinni www.itr.is/sumar
Nánari upplýsingar eru að finna hér við hliðina í flokknum Sumarfrístund 2010.  Einnig má fá upplýsingar um Smíðaverkstæði sem og hvernig útbúa á börnin í Sumarfrístundina.

Sumarfrístund 2010

í frístundaheimilinu Töfraseli við Árbæjarskóla.   Sumarfrístund er opin öllum börnum f: ´00-´03.  Lögð er áhersla á kunnuglegt umhverfi í bland við skapandi starf, skemmtilega útiveru, holla hreyfingu og öryggi.  Stuðlað er að stöðugleika og auknum tengslum barnanna hvert við annað, starfsfólkið og frístundaheimilið.

Skráning er hafin  á Rafrænni Reykjavík.

Sumarfrístund hefst á ný!

Hæ, hó!
Sumarfrístund hefst á ný eftir örsturtt sumarfrí, mánudaginn 3. ágúst.  Þar til skóli hefst á ný í haust verða í boðið 3. vikur í Sumarfrístund.  Þetta eru vikurnar;
3. - 6. ágúst
9. - 13. ágúst og
16. - 20. ágúst.
Skráning fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík á slóðinni www.rvk.is.
Mikið fjör og mikið gaman!
Sjáumst!!!