Heilir dagar í Töfraseli
Heilir dagar í Töfraseli eru á þeim dögum sem hefðbundin kennsla fellur niður, það er á starfsdögum kennara, foreldraviðtalsdögum, í jóla- og
páskafríum. Þá opnar frístundaheimilið kl: 8.00. Ath! Greiða þarf sérstakleg fyrir dvölina frá kl: 8.00-13.30, 890 kr.
Skrá þarf börnin sérstaklega á þá fyrir áður auglýstan skilafrest og er skráningin bindandi. Foreldrar verða rukkaðir fyrir hvern dag sem barnið er skráð hvort sem barnið nýtur þjónustunnar eður ei. Gjaldið fellur niður ef upp koma veikindi hjá barninu séu veikindin tilkynnt samdægurs fyrir kl. 10.00.
Töfrasel opnar ekki fyrr á skertum skóladögum.