Kirkjustarf

Kirkjustarfið er ætlað fyrir krakka úr 1.- 4. bekk í Selásskóla en ekki bara fyrir krakkana sem eru í Víðiseli.
Æskulýðsstarfsmenn frá kirkjunni koma í Selásskóla og fræða börnin um mál kirkjunnar.
 
Hvar er kirkjustarfið?
 
Inní skólanum í Tónmenntarstofunni.
 
Hvað er gert í kirkjustarfinu?
 
Það er sungið, dansað, farið í leiki, föndrað og horft á mynd svo eitthvað sé nefnt. Mikið fjör og mikið gaman.
 
Þarf að skrá sig til að fara í kirkjustarfið?
 
Nei það þarf ekki að skrá sig. Börnunum er frjálst að mæta og taka þá í skemmtilegu starfi sem er í boði Árbæjarkirkju.