Fréttir

13.8.2010

Vetrarstarf Víðisels fer brátt að byrja.

 
Senn líður að því að Víðisel fari inn í sinn 5. vetur. Skólasetning er 23. ágúst 2010.
 Við hlökkum mikið til að fá nýja hressa krakka og að sjálfsögðu einnig þá sem áður hafa verið hjá okkur :)

Ef þið hafið einhverjar spurningar um hvað sem er varðandi okkur, starfsemina hikið þá ekki við að hringja í 664-7622 eða senda tölvupóst á vidisel@itr.is.
 
Sjáumst hress og kát!!

Kær kveðja,
Starfsfólk Víðisels

6.5.2010

Sumarfrístund 2010

Sumarfrístund 2010 í frístundaheimilinu Töfraseli við Árbæjarskóla

 

Sumarfrístund er opin öllum börnum f: ´00-´03.  Lögð er áhersla á kunnuglegt umhverfi í bland við skapandi starf, skemmtilega útiveru, holla hreyfingu og öryggi.  Stuðlað er að stöðugleika og auknum tengslum barnanna hvert við annað, starfsfólkið og frístundaheimilið.

Skráning er hafin. [ MEIRA ]