Fréttir og tilkynningar
Skák fyrir alla. | Tían 23.02.2012
Hér er skemmtileg heimasíða fyrir öll börn um skákíþróttina. Endilega skoðið þessa heimasíðu og lærið á töfrandi veröld skákheimsins.
Lazertag | Holtið 15.02.2012
Lazertag á föstudaginn 17. febrúar.Kostar 1900 kr og þið þurfið að koma með strætómiða sjálf. Innifalið er 2 leikir. Við ætlum að fara í skemmtigarðinn í Smáralind. Þeir sem hafa áhuga á koma með þurfa að skrá sig og borga fyrir fimmtudaginn 16. febrúar.
KV. Holtið
Miðasala á Samfestinginn | Fókus 08.02.2012
Miðasala á Samfestinginn:
Fyrir þá sem eru í Ingunnarskóla er miðasalan í Fókus miðvikudaginn 8 febrúar á milli 19.30 og 20.00.
Fyrir þá sem eru í Sæmundarskóla er miðasalan í Sæmundarskóla 9 febrúar á milli 12.40 og 13.10.
Miðinn kostar 3700 krónur og maður VERÐUR að borga við skráningu, a...
Umsóknir fyrir skólaárið 2012-2013 | Fjósið 08.02.2012
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar (SFS) rekur frístundaheimili við grunnskóla borgarinnar.
Frístundaheimilin eru fyrir börn í 1. – 4. bekk og eru opin frá því að skóladegi lýkur til kl. 17:15. Sótt er um dvöl á frístundaheimili skólaárið 2012-2013 á rafrænu formi á vefslóðinni www.reykjavi...
SamFestingurinn | Holtið 06.02.2012
Helgina 2. og 3. mars verður SamFestingurinn haldinn í Laugardalshöllinn. sjá meira hér
| Holtið 03.02.2012
Í kvöld 3. febrúar verður sameiginlegt ball með Tíunni og Fókus. Ballið er styrktarball fyrir krakkana sem eru að fara í skíðaferðina. Á ballið kostar 500 kr,
það verður haldið í Tíunni og stendur frá kl. 20-23.
Heimsókn frá Umhyggju | Fjósið 03.02.2012
Eins og þið vitið héldu eldri börn Fjóssins basar 18. janúar til stuðnings Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum. Ragna K. Marinósdóttir framkvæmdastjóri Umhyggju heimsótti okkur síðastliðinn miðvikudag...
Stensl og fatalitun á mánudaginn | Tían 27.01.2012
Allir velkomnir að mæta í Tíuna og stensla eða lita á striga eða föt. Ef þið ætlið að taka þátt þá þurfið þið að koma með striga eða föt.