Frístundaheimili Umsóknir fyrir skólaárið 2012-2013
25.01.2012
Börn sem eru að hefja skólagöngu haustið 2012 hafa forgang um dvöl á frístundaheimilum frá og með næsta hausti. Ennfremur njóta börn sem búa við sérstakar aðstæður forgangs, skv. vinnureglum sem skóla- og frístundasvið setur sér.
Fast mánaðargjald er 11.300.- kr. á mánuði fyrir fulla þjónustu en einnig er hægt að sækja um færri en 5 daga í viku. Veittur er 75% systkinaafsláttur af frístundagjaldi vegna annars barns og 100% vegna þriðja.
Þegar tekist hefur að manna stöður frístundaleiðbeinenda/ráðgjafa er fyrst hægt að tryggja öllum börnum dvöl á frístundaheimili.
Nánari upplýsingar um frístundaheimilin og gjaldskrá þeirra er að finna á heimasíðu skóla- og frístundasviðs: www.skolarogfristund.is og í síma 411-1111. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á: upplysingar@reykjavik.is
Hægt er að nota frístundakort til greiðslu dvalargjalda á frístundaheimilum.
Nánari upplýsingar um það er að finna á heimasíðu ÍTR, www.itr.is og verða einnig sendar foreldrum í september 2012.
Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið áfrístundamiðstöðvar skóla- og frístundasviðs (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á frístundaheimili í gegnum síma. Þjónustumiðstöðvar, frístundamiðstöðvar og Símaver Reykjavíkurborgar
(s: 411-1111) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.
Með von um ánægjulegt samstarf.
Bestu kveðjur,
Soffía Pálsdóttir,
skrifstofustjóri frístundamála á SFS