Heimsókn frá Umhyggju
03.02.2012
Eins og þið vitið héldu eldri börn Fjóssins basar 18. janúar til stuðnings Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum. Ragna K. Marinósdóttir framkvæmdastjóri Umhyggju heimsótti okkur síðastliðinn miðvikudag og færði Fjósinu viðurkenningaskjal vegna framtaksins og spjallaði við börnin. Í lokin náði lítill leikhópur Rögnu með sér inní klúbbahús þar sem þau sýndu henni frumsamið verk. Myndir af heimsókn Rögnu eru komnar á heimasíðuna undir Myndir.