Fréttir og tilkynningar

SamFestingurinn

06.02.2012

Helgina 2. og 3. mars verður SamFestingurinn haldinn í Laugardalshöllinn. SamFestingurinn er hátíð sem haldin er á vegum samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi og inniheldur hún ball og söngkeppni. Á föstudeginum er ball frá kl. 19-23 og á laugardeginum er söngkeppin en hún er frá kl. 13-16.
Miðaverð á hátíðina er 3700 kr.

Ekki er hægt að kaupa einungis miða á ballið eða sönkeppnina, en unglingarnir ráða því sjálfir hvort þeir fara á báða atburðina eða annan þeirra.

Allir unglingar sem kapa miða í Holtinu á hátíðina VERÐA að fara með rútunni fram og til baka á atburðina.

Fjölmargar athugasemdir um klæðaburð krakkana hafa borist stjórn Samfés undanfarin ár og var í framhaldi af því ákveðið að taka upp reglur um klæðaburð á Samfés hátíðinni 2012. Þessum reglum ber okkar unglingum sem og öðrum að fara eftir.

Reglurnar eru eftirfarandi:

- ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi)

-Varst skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum

- Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan

Einnig minnum við á að vanda skal val á skóm og beita skynsemi í þeim efnum þar sem að þetta ball er langt og fá tækifæri gefast til að setjast niður og hvíla sig.

Ef einhverjar spurningar eru í sambandi við þessa hátíð endilega hafið samband við okkur í síma 411-5840




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit