Fréttir og tilkynningar

Stjörnulandspósturinn

07.02.2012

Janúar hefur verið veðurfarslega erfiður en í Stjörnulandi hefur verið sólskin og gleði. Nýr starfsmaður, Sverrir Hermannsson, hóf störf seinnipartinn í janúar og sinnir hann m.a. stuðningi. Er hann frábær viðbót við starfshópinn. Erum við þá orðin 14 talsins sem vinnum hér og má geta þess að meðalaldur starfsmanna hefur lækkað þó nokkuð þar sem stór hópur nýrra starfsmanna er fæddur 1989-90.  Meðalaldurinn er því ekki nema 34 ár. Ágústa Hugrún hefur verið í veikindaleyfi og er hennar sárt saknað en vonast er til að hún komi til baka í mars. Smávægilegar breytingar hafa verið á barnafjöldanum, einhver börn hætt eða viðvera þeirra minnkað en í staðinn höfum við fengið ný börn og því lítil fækkun. Komið hefur verið á fót stelpu og srákaklúbbum fyrir 1. bekk og stelpur  í 2. - 4. bekk, en fyrir höfðum við verið með strákahóp fyrir 2. -  3. bekk. Að lokum viljum við bara minna á skráninguna fyrir löngu dagana nú í febrúar og lokunar í vetrarfrínu.

Langir dagar eru:

21. febrúar (sprengidagur)

22. ferúar (öskudagur)

Lokað í Stjörnulandi 23. og 24. feb. vegna vetrarfrís

 

 

 

 




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit