Fréttir og tilkynningar

Umsóknir fyrir skólaárið 2012-2013

08.02.2012

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar (SFS) rekur frístundaheimili við grunnskóla borgarinnar.

Frístundaheimilin eru fyrir börn í 1. – 4. bekk og eru opin frá því að skóladegi lýkur til kl. 17:15. Sótt er um dvöl á frístundaheimili skólaárið 2012-2013 árafrænu formi á vefslóðinni www.reykjavik.is

Hægt verður að sækja um frá og með 6. febrúarnæstkomandi.

Börn sem eru að hefja skólagöngu haustið 2012 hafa forgang um dvöl á frístundaheimilum frá og með næsta hausti. Ennfremur njóta  börn sem búa við sérstakar aðstæður forgangs, skv. vinnureglum sem skóla- og frístundasvið setur sér.

Fast mánaðargjald er 11.300.- kr. á mánuði fyrir fulla þjónustu en einnig er hægt að sækja um færri en 5 daga í viku. Veittur er 75% systkinaafsláttur af frístundagjaldi vegna annars barns og 100% vegna þriðja.

Þegar tekist hefur að manna stöður frístundaleiðbeinenda/ráðgjafa er fyrst hægt að tryggja öllum börnum dvöl á frístundaheimili.

Nánari upplýsingar um frístundaheimilin og gjaldskrá þeirra er að finna á heimasíðu skóla- og frístundasviðs: www.skolarogfristund.is og í síma 411-1111. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á: upplysingar@reykjavik.is

Hægt er að nota frístundakort til greiðslu dvalargjalda á frístundaheimilum.

Nánari upplýsingar um það er að finna á heimasíðu ÍTR, www.itr.is og verða einnig sendar foreldrum í september 2012.

Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið áfrístundamiðstöðvar skóla- og frístundasviðs (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á frístundaheimili í gegnum síma. Þjónustumiðstöðvar, frístundamiðstöðvar og Símaver Reykjavíkurborgar

(s: 411-1111) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.

Með von um ánægjulegt samstarf.

Bestu kveðjur,

Soffía Pálsdóttir,

skrifstofustjóri frístundamála á SFS




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit