Um Félagsmiðstöðvar Ársels

Í Árbænum tók fyrsta félagsmiðstöðin til starfa haustið 1981. Sú félagsmiðstöð hét Ársel og var staðsett við hliðina á Árbæjarskóla. 
Haustið 2003  tók Frístundamiðstöðin Ársels til starfa og samhliða hófst á hennar vegum einnig félagsmiðstöðvarstarf í Grafarholti og síðar í  Norðlingaholti sem voru ný hverfi í uppbyggingu. Frístundamiðstöðin Ársel starfrækir því í dag alls þrjár félagsmiðstöðvar í sínum borgarhluta sem staðsettar eru í Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti. Markhópur félagsmiðstöðvanna  eru börn og unglingar á aldrinum  10-16 ára úr þessum hverfum borgarinnar.  
Í félagsmiðstöðvunum er unnið út frá hugmyndafræði sem byggir á barna og unglingalýðræði og tryggir áhrif barna og unglinga í starfi. Mikil áhersla er lögð á samvinnu, virðingu, reynslunám, félagsfærni, sjálfstyrkingu, samfélagslega virkni og þátttöku  barna og unglinga. Síðast en ekki síst er verið að vinna að forvörnum og skýr afstaða tekin gegn neyslu vímuefna og annarri neikvæðri hegðun. Í félagsmiðstöðvunum fá unglingar vettvang og tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri  og í framkvæmd, vinna að áhugamálum sínum og fást við skemmtileg verkefni.
Deildastjóri unglingastarfs Ársels er Sigurbjörg Kristjánsdóttir.
 
Félagsmiðstöðvar Ársels eru eftirfarandi
Félagsmiðstöðin Tían
Rofabæ 30 Árbæ, 110 Reykjavík
Verkefnastjóri: Bjarni Þóraðason
bjarni.thordarson@reykjavik.is
s:4115810/4115811 gsm: 6955041/6955094
www.arsel.is/tian

Félagsmiðstöðin Fókus
Kirkjustétt 2-6, Grafarholti, 113 Reykjavík
Verkefnastjóri: Silja Rut Jónsdóttir
silja.rut.jonsdottir@reykjavik.is
S:4115820/4115821 gsm:6647623/6647607
www.arsel.is/fokus

Félagsmiðstöðin Holtið
Norðlingabraut 12, Norðlingaholti, 110 Reykjavík
Verkefnastjóri: María Ólafsdóttir
maria.olafsdottir@reykjavik.is
s:4115840/4115841gsm: 6955093/6647606
www.arsel.is/holtid

Nánari upplýsingar um starfsemi  og dagskrá félagsmiðstöðvanna má finna á heimasíðum þeirra.


 


Félagsmiðstöðvar


Félagsmiðstöðvarblaðið UNG 2010




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit