12.7.2010
Heil og sæl, enn og aftur!
Nú er síðasta vikan okkar fyrir sumarfrí hafin og spennandi dagar framundan hjá hinum síhressu Stjarnlendingum. Dagskrána má finna í borðanum hér til hægri og hvetjum við alla foreldra til að skoða hana vel og vandlega svo þeir geti öfundað okkur af öllu afli fram að helgi. ;)

Síðustu viku áttum við því miður í vandræðum með netið og gátum því hvorki sett neitt inn á síðuna né sent nokkrum manni tölvupóst, við biðjumst velvirðingar á því en reynum eftir bestu getu að bæta úr heimasíðunni í þessari viku.
Að lokum viljum við að gefnu tilefni minna foreldra á að senda börnin vel klædd og við öllu búin í Stjörnulandið góða. Veðrið getur breyst skyndilega hér á Fróni og höfum við brennt okkur örlítið á því í sumar. Gott er ef börnin eru með hlýja peysu og

yfirhöfn með sér og gúmmístígvélin hafa oft reynst okkur þarfaþing í sumar. Jafnframt er æskilegt að börnin hafi þurra sokka í töskunni sinni til að grípa í ef blotnar í veðri, því engum finnst gott að vera kalt á tánum. :)
Segjum þetta gott núna, Stjarnlendingarnir okkar biðja að heilsa ykkur öllum!
Bless í bili,
Stjörnuland
24.6.2010
Dagskrár sumarsins!
Við minnum á að nálgast má dagskrár sumarfrístundar Stjörnulands hér á heimasíðunni. Dagskrárnar eru settar inn á mánudögum og fyrir eina viku í senn, þær má finna hér neðst hægra megin í flokknum Dagskrá sumarfrístundar.
[ MEIRA ]
22.6.2010
Dagbók sumarfrístundar
Sælt veri fólkið!
Nú er dagbók sumarfrístundarinnar komin í gagnið hér á heimasíðunni okkar og hvetjum við alla til að lesa um það sem drífur á daga okkar hér í Stjörnulandi :) Dagbókina má finna undir flipa í borðanum hér til vinstri.