4.3.2010
Samfés Hátíðin
Já komið þið sæl og blessuð !
Þá er að ganga í garð sú helgi sem að mörg ykkar hafa beðið eftir en Samfés hátíðin verður haldin hátíðlega núna um helgina 5-6.mars . Hérna ætla ég að setja upp tímaplan fyrir þá sem að eru búnir að kaupa sér inn á hátíðina.
Föstudagurinn (Samfés Ball ) Mæting 17:20 í Tíuna og verðið að vera tímanlega þar sem að rútan fer 17:40 og ekki er hægt að bíða eftir neinum þannig að ég endurtek mæta tímanlega!!
Við förum svo öll heim saman í rútum og það má ekki fara heim nema með rútunni sem fer aftur klukkan 23:00 frá laugardalshöll .
Laugardagurinn er söngvakeppnin þar sem að Stefán Karel og Gísli Már keppa fyrir hönd Tíunnar . Mæting í Tíunna er klukkan 12:00 og verðið þið einnig að vera mjög tímanleg því að rútan fer 12:15 og er ekki hægt að bíða eftir neinum þannig að ég endurtek mæta tímanlega !!
Við förum svo heim frá Laugardalshöllinni með rútunni klukkan 16:00 .
Munið svo öll að haga ykkur vel !!
kv, Tíustaff
25.2.2010
Neon Ball
BALL !!!
Á morgun 26.feb klukkan 20:00
DJ arnir í DJ ráðinu munu spila tryllta tónlist fyrir gesti :)
Sjáumst hress og kát í trylltum dansi :)
24.2.2010
Skráning í skíða- og brettaferð
á morgun, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 12.35 í Tíunni
Borga þarf 1.000 kr við skráningu !!
Ferðin verður á Sauðárkrók dagana 20. og 21. mars og verður farið með Fókus og Holtinu
Verð 10.500 en hægt er að FJÁRAFLA fyrir ferðinni
Innifalið í verði:
*rútur fram og til baka
*gisting
*sund
*matur hádegi á laugardag
*matur kvöld laugardag
*matur kvöld sunnudag
*skíðapassi í fjallið